Oddaleikur í dag - ÁFRAM SNÆFELL!!

Í dag kl. 19.15 fer fram oddaleikur í undanúrslitum karla í körfubolta. Snæfell mætir KR í DHL-höllinni í Faxaskjólinu. Ég veit að fjöldi fólks frá Stykkishólmi ætlar að flykkjast á leikinn og styðja okkar menn, enda mikið í húfi. Þetta er fimmti leikurinn í syrpunni og er staðan tvö - tvö. KR fór frekar illa með Snæfell í Fjárhúsinu í Stykkishólmi síðastliðinn mánudag. Ég vona að Hólmarar komi hungraðir í sigur, til leiks í kvöld. Það væri gaman að fá að mæta í Laugardalshöllina á úrslitaleik. Frá því að ég fór fyrst að fylgjast með körfuboltanum þá höfum við aka SNÆFELL tvisvar komist í höllina og einu sinni orðið Deildarmeistarar. Það væri gaman að fara alla leið á þessu tímabili. Hlakka til að sjá alla hólmarana fjölmenna á leikinn, en fólk hefur verið ótrúlega duglegt að mæta á leiki, heima og að heiman. Þetta er eins og að fara á Danska daga, stemmingin er svo mikil og margir brottfluttir hólmarar láta sjá sig.

ÁFRAM SNÆFELL!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Erlan

Höfundur

Erla Ósk Ásgeirsdóttir
Erla Ósk Ásgeirsdóttir

Heimdellingur með meiru.....

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • d-sv4
  • d-rn4
  • d-su2
  • d-su3
  • d-su4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 579

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband