Sumargleði í Húsi verslunarinnar

Við opnuðum kosningaskrifstofuna okkar í dag með pompi og prakt í Húsi verslunarinnar. Fólk fjölmennti enda mikið um að vera, formaður flokksins mætti á svæðið, ásamt öðrum frambjóðendum í Reykjavík.  Það var hugur í mönnum og mikil stemming ríkti á nýju kosningaskrifstofunni, boðið var upp á óperuídífusöng, kaffi og með því. Ný könnun sýndi að flokkurinn fengi 28 alþingismenn kjörna yrði gengið til kosninga í dag, þar af 13 nýja þingmenn, 7 konur og 6 karla. Það væri ekki leiðinlegt ef þetta væri niðurstaða kosninga.

 Það þarf vonandi ekki að taka það fram að allir eru velkomnir á kosningaskrifstofuna, en hún verður opin frá 16-21 virka daga og 13-17 um helgar.

Minni jafnframt á teiti vina okkar í Suðvesturkjördæmi, en félög ungra standa fyrir stuði annað kvöld kl. 20.00 í Lindarhverfinu ... rétt hjá Nings... þarf að skoða nánar hvar kosningaskrifstofan er niðurkomin.. og þangað eru að sjálfsögðu allir velkomnir.


mbl.is Sumrinu fagnað í rólegheitum víðast hvar á landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl

Gratulera með miðstjórnarkosninguna - var staddur erlendis en skilst að fundurinn hafi verið glæsilegur að venju.  Það stefnir allt í að miðstjórnin sé að fyllast af efnilegum MPA stúdínum, en Unnur Brá fékk líka ljómandi endurkosningu:)

 Kv.

Jörundur

Jörundur Kristjánsson (IP-tala skráð) 20.4.2007 kl. 09:26

2 Smámynd: Margrét Elín Arnarsdóttir

Heyrðu þetta er bara við hliðina á Players, eða s.s. næsta hús við - hefði kannski verið nær að segja það heldur en fyrir ofan Mekong, við Kópavogsbúar náttúrlega þekkjum hvar Mekong er í Kópavogi en kannski ekki allir hinir

Sjáumst vonandi í kvöld...ef ég næ að rífa hausinn upp úr bókunum

Margrét Elín Arnarsdóttir, 20.4.2007 kl. 10:23

3 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Til hamingju með flotta kosningaskrifstofu. Já, hehe... held að það sé nokkur rétt að það vita örugglega ekki ALLIR hvar Mekong í Kópavogi er staðsett:P

Reynir Jóhannesson, 20.4.2007 kl. 14:04

4 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Til hamingju með flotta kosningaskrifstofu. Já, hehe... held að það sé nokkur rétt að það vita örugglega ekki ALLIR hvar Mekong í Kópavogi er staðsett:P

Reynir Jóhannesson, 20.4.2007 kl. 14:05

5 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Til hamingju með flotta kosningaskrifstofu. Já, hehe... held að það sé nokkur rétt að það vita örugglega ekki ALLIR hvar Mekong í Kópavogi er staðsett:P

Reynir Jóhannesson, 20.4.2007 kl. 14:05

6 Smámynd: Þórður Gunnarsson

Reynir, ertu klár á því hvort allir viti hvar Mekong í Kópavogi er staðsett? Ég var eitthvað velta mér upp úr þessu...

Þórður Gunnarsson, 24.4.2007 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Erlan

Höfundur

Erla Ósk Ásgeirsdóttir
Erla Ósk Ásgeirsdóttir

Heimdellingur með meiru.....

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • d-sv4
  • d-rn4
  • d-su2
  • d-su3
  • d-su4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 20
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 536

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband