Eru menntamál kosningamál?

Öflugt og skilvirkt menntakerfi er ein af grunnstoðum samfélagsins og forsenda fyrir vexti þess og velsæld. Undanfarin ár hafa átt sér stað miklar breytingar í skólamálum á Íslandi. Grunnskólarnir voru færðir til sveitarfélaganna, einkaaðilum var gert kleift að stofna og reka, leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla. Þetta hefur leitt af sér byltingu í námsframboði og hafa tækifæri Íslendinga til þess að mennta sig hafa stóraukist. Ekki nóg með að skólum hefur fjölgað verulega, þá hefur fjölbreytni milli skólanna jafnframt aukist.

 

Um 97% þeirra sem ljúka grunnskóla hefja nám í framhaldsskóla og var brautskráningarhlutfallið 84%  úr framhaldsskóla árið 2004 samkvæmt tölum OECD. Ef við lítum til háskólanna þá var brautskráningarhlutfallið um 50%  árið 2004, en það var hæsta hlutfall innan OECD það árið, en meðaltalið var 34,8%. Á undanförnum árum hafa Íslendingar einnig tekið forystu þegar kemur að fjölda stúdenta í háskólanámi, en árið 2000 voru 10,5% Íslendinga á aldrinum 20-40 ára í háskólanámi, en árið 2004 var þetta hlutfall komið upp í 15% sem setur okkur í fyrsta sæti á norðurlöndunum. Háskólanemum hefur fjölgað stöðugt síðan þessi mæling var framkvæmd og má búast við að næsta könnun færi okkur enn framar.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt metnað sinn í að hér á Íslandi sé öflugt menntakerfi og að einstaklingar hafi jöfn tækifæri til náms. Samkeppni og valfrelsi hefur verið innleitt í skólakerfið, ásamt fjölbreytilegu rekstraformi. Aldrei hafa fleiri Íslendingar verið við nám og aldrei hefur meiri fjármunum verið varið til menntunar á öllum skólastigum.

 

Ef menntamál eru helsta kosningamálið í dag þá þarf Sjálfstæðisflokkurinn ekki að kvíða niðurstöðu kosninga 12. maí því á Íslandi hefur átt sér stað bylting í menntamálum. Auðvitað má alltaf gera betur, en Íslendingar geta verið stoltir af þeim árangri sem náðst hefur undanfarin ár í skólamálum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Erlan

Höfundur

Erla Ósk Ásgeirsdóttir
Erla Ósk Ásgeirsdóttir

Heimdellingur með meiru.....

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • d-sv4
  • d-rn4
  • d-su2
  • d-su3
  • d-su4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 537

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband