2.5.2007 | 11:37
Ég myndi hugsa mig tvisvar um væri ég í Starfsgreinasambandinu
Mér fannst ótrúlegt að hlusta á viðtal við framkvæmdastjóra Starfgreinasambandsins í morgun á Bylgjunni. Maðurinn hélt því fram að búið væri að ákveða að Landsvirkjun yrði einkavædd, Kjartan Gunnarsson yrði forstjóri og að búið væri að úthluta S-hópnum svokallaða ákveðinn hluta af kökunni. Þessar samsæriskenningar framkvæmdastjórans voru svo birtar á heimasíðu Starfgreinasambandsins. Það er augljóst að maðurinn misnotar aðstöðu sína í pólitískum tilgangi. Ég myndi hugsa mig tvisvar um ef að ég í Starfsgreinasambandinu.
Það sem mér fannst jafnframt merkilegt var að fjölmiðlar gleyptu þessar samsæriskenningar alveg hráar og birtu þetta sem fyrstu frétt. Þar með náði þessi ágæti maður sínu fram - ég vona að fjölmiðlar vandi sig betur og reyni að sjá fyrir þegar menn koma fram undir fölsku flaggi í pólitískum tilgangi.
Þetta var í raun engin frétt, Sjálfstæðisflokkurinn fer ekki í felur með ályktanir sínar eins og má sjá á svörum forsætisráðherra í þessari frétt. Í ályktun um umhverfismál og auðlyndanýtingu á Landsfundi kom eftirfarandi fram varðandi íslensk orkufyrirtæki:
Íslensku orkufyrirtækin eru í dag leiðandi þekkingarfyrirtæki Landsfundur fagnar aðkomu einkaaðila að útrás orkufyrirtækjanna. Tímabært er að leysa úr læðingi krafta einkaframtaksins svo að íslensk sérþekking og hugvit fái notið sín til fulls í þeirri útrás. Landsfundur leggur til að skoðaðir verði kostir þess að færa eignarhald ríkisins á orkufyrirtækjum yfir til einkaaðila, sérstaklega með tilliti til samkeppnis- og jafnræðissjónarmiða.
![]() |
Telur líklegt að fleiri orkufyrirtæki verði einkavædd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Erlan
Bloggvinir
-
otti
-
andres
-
andriheidar
-
arnljotur
-
abg
-
audureva
-
arnih
-
astamoller
-
vikari
-
bleikaeldingin
-
borgar
-
doggpals
-
ekg
-
einsidan
-
eyrun
-
ea
-
fannarh
-
grazyna
-
gutti
-
heimsborgari
-
grj
-
hannesgi
-
hannesjonsson
-
helgahaarde
-
herdis
-
hlynur
-
ingisund
-
golli
-
ingo
-
johannalfred
-
nonniblogg
-
jonthorolafsson
-
karifi
-
killerjoe
-
kolbrunb
-
kristinhrefna
-
kristinmaria
-
lydur06
-
maggaelin
-
martasmarta
-
olofnordal
-
pkristbjornsson
-
doktorper
-
reynir
-
advocatus-diaboli
-
danmerkufarar
-
stefaniasig
-
stebbifr
-
eyverjar
-
svansson
-
villithor
-
thorsteinn
-
vitinn
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.